já það er nú heil margt búið að gerast hjá mér síðn síðast. Bekkjarkvöldið var í síðustu viku og það var ferlega gaman. Ég og Almar bekkjarbróðir minn höfðum spurningakeppni milli kvenna og karla og það voru 3 mömmur í liðinu og þrír pabbar í hinu liðinu. Mamma mín og mamma Almars og Mamma Hermanns voru í mömmuliðinu og Pabbi Sunnu, Arnar stjúpi minn og Pabbi Jóns Páls voru í hinu. Pabbarnir unnu með einu stigi. Mamma segir að þeir hafai líka fengið léttu spurningarnar hehehe.
Nú er farið að vora og ég og hinir grallararnir í bekknum erum orðin örlítið óþolinmóð svo ekki sé meira sagt, viljum fá að vera úti á kvöldin og sleppa að læra. En við verðum að bíða eiithvað með það. Ég ætla ekki að fara í sumarbúðir í sumar þar sem Ævintýrasumarbúðirnar eru í fríi nú í sumar, ég vill bara fara í þær, fer bara á næsta ári. Ég veit ekki alveg hvað ég ætla að gera í sumar ég mun allavega æfa fótbolta og keppa. Mamma keypti ógissla flotta fótbolta takkaskó á mig í gær og ég prufaði þá aðeins og er ekki frá því að ég sé eitthvað aðeins betri í fótbolta þegar ég er í þeim
.
Ég er að fara í vorpróf á morgun og föstudaginn svo ætla ég að skella mér suður til pabba og vera með honum í sumarbústanum hennar ömmu og afa um helgina. Kannski koma þau líka.
Jæja ritarinn minn nennir ekki að skrifa meira í dag. Bið að heilsa ykkur
bergsteinn skrifaði