já það er nú heil margt búið að gerast hjá mér síðn síðast. Bekkjarkvöldið var í síðustu viku og það var ferlega gaman. Ég og Almar bekkjarbróðir minn höfðum spurningakeppni milli kvenna og karla og það voru 3 mömmur í liðinu og þrír pabbar í hinu liðinu. Mamma mín og mamma Almars og Mamma Hermanns voru í mömmuliðinu og Pabbi Sunnu, Arnar stjúpi minn og Pabbi Jóns Páls voru í hinu. Pabbarnir unnu með einu stigi. Mamma segir að þeir hafai líka fengið léttu spurningarnar hehehe.
Nú er farið að vora og ég og hinir grallararnir í bekknum erum orðin örlítið óþolinmóð svo ekki sé meira sagt, viljum fá að vera úti á kvöldin og sleppa að læra. En við verðum að bíða eiithvað með það. Ég ætla ekki að fara í sumarbúðir í sumar þar sem Ævintýrasumarbúðirnar eru í fríi nú í sumar, ég vill bara fara í þær, fer bara á næsta ári. Ég veit ekki alveg hvað ég ætla að gera í sumar ég mun allavega æfa fótbolta og keppa. Mamma keypti ógissla flotta fótbolta takkaskó á mig í gær og ég prufaði þá aðeins og er ekki frá því að ég sé eitthvað aðeins betri í fótbolta þegar ég er í þeim
.
Ég er að fara í vorpróf á morgun og föstudaginn svo ætla ég að skella mér suður til pabba og vera með honum í sumarbústanum hennar ömmu og afa um helgina. Kannski koma þau líka.
Jæja ritarinn minn nennir ekki að skrifa meira í dag. Bið að heilsa ykkur
hææ hæ Bergsteinn það er bara alt að gerast hjá þér þú bara getur ekki stippað það er reyndar skiljanlegt það er komið svo gott veður þú verður svo að vera duglegri og til hamingu með þetta í gær þú hefur greinilega náð mikklum framförum kv.Inga Lára